Aðeins um okkur

Tónalind er staður þar sem þú mátt hægja á, hlusta á líkamann og gefa þér rými til að vera. Hér er unnið með hljóð, hreyfingu og nærveru á mjúkan og nærandi hátt, með það að markmiði að róa taugakerfið, losa um spennu og styðja við jafnvægi í líkama og huga.

  • Tónheilun, einnig kölluð hljóðbað, er róleg og nærandi stund þar sem unnið er með tóna og tíðni til að styðja við djúpslökun og innra jafnvægi. Með hljóði er skapað rými fyrir líkamann til að mýkjast, hægja á sér og losa um spennu, á sinn eigin hátt og á sínum eigin tíma.

  • Mjúkir tímar þar sem unnið er markvisst að losa spennu í bandvef og vöðvum líkamans með mjúkum boltum, Yinyoga stöðum/teygjum og djúpöndun. Þetta eru rólegir en krefjandi tímar fyrir alla sem sækjast eftir meiri liðleika, vilja létta á spennu í líkamanum, bæta öndun, auka súrefnisupptöku og ná góðri líkamlegri og andlegri slökun.

  • For - Rest er retreat helgi í Skúlagarði á norðurlandi-eysta helgina 13-15 .mars 2026.  Þessi  helgi er hugsuð til þess að veita konum tækifæri á að næra bæði líkama og sál. Helgi sem er hugsuð til þess að núllstilla sjálfan sig og ná sér í verkfæri til að taka áfram með út í  lífið og hið daglega amstur. Mikil áhersla verður lögð á hljóðböð/tónheilun og nýtum við okkur eiginleika og töfra kristalskála til að ná fram djúpri slökun og upplifa áhrif hljóðbylgna á líkama og sál.